Guðmundur hringdi ríkislögreglustjóra en ekki dómsmálaráðherra og aðstöðumunur í framhaldsskólum

Spegillinn - Un pódcast de RÚV

Categorías:

Sex framhaldsskólar í landinu geta ekki boðið þær einingar í stærðfræði sem þarf til að komast í verkfræði og raungreinanám. Þetta hefur gerst í kjölfar breyinga sem urðu fyrir rúmum tíu árum, á námsskrá og námsbrautum framhaldsskólanna og svo styttingunni. Breytingar sem erfiðara er að takast á við í smærri skólum, ekki síst á landsbyggðinni. Við fjöllum líka um málaferli sem Orkubú Vestfjarða stendur í og snýst um vatnsréttindi á Vestfjörðum. Spegillinn greindi í gær frá samskiptum ráðherra og ríkislögreglustjóra í aðdraganda þess að brottvísun hins tólf ára gamla Yazans Tamimi og fjölskyldu hans var frestað mánudaginn 16. september. Þótt forsætisráðherra hefði sagt það skýrt í skilaboðum til ríkislögreglustjóra þennan mánudagsmorgun og ítrekað það í fjölmiðlum daginn eftir að brottvísun fjölskyldunnar stæði hafa þau engu að síður fengið alþjóðlega vernd og dvalarleyfi hér næstu tvö árin hið minnsta. Við fjöllum áfram um það mál.